Taflan Gjaldmiðill vaxtaskilmála er notuð til að setja upp vaxtaskilmála í erlendum gjaldeyri. Til dæmis er hægt að nota töfluna til að setja upp vaxtaskilmála með viðbótargjaldi að upphæð FRF 100. Hægt er að setja upp vaxtaskilmála í erlendum gjaldmiðli í öllum þeim gjaldmiðlum sem notandi notar í viðskiptum.
Hægt er að skilgreina marga vaxtaskilmála í erlendum gjaldmiðlum fyrir hvern kóta í glugganum Vaxtaskilmálar. Í glugganum Vaxtaskilmálar er smellt á Tengdar upplýsingar, bent á Skilmála og síðan smellt á Gjaldmiðlar. Taflan Gengi fyrir Vaxtaskilmála birtist. Fyrir hvern vaxtaskilmálakóta, skilgreinir notandi upplýsingar um erlendan gjaldmiðil sem samanstendur af gjaldmiðilskóta og ef til vill viðbótargjald.
Þegar vaxtareikningar í erlendum gjaldmiðli eru stofnaðir fer kerfið að þeim skilyrðum varðandi erlenda gjaldmiðla sem sett eru í þessari töflu til að stofna vaxtareikninga. Ef engir vaxtaskilmálar fyrir erlenda gjaldmiðla eru settir upp notar kerfið SGM-vaxtaskilmálana sem settir voru upp í töflunni Vaxtaskilmálar og breytir þeim í viðeigandi gjaldmiðil.