Tilgreinir gjaldmiðilskóta innheimtubréfsins.

Ef keyrslan Stofna innheimtubréf er notuð er eitt innheimtubréf stofnað fyrir hvern gjaldmiðil sem gjaldfallnar viðskiptamannafærslur finnast fyrir.

Ef innheimtubréf er stofnað handvirkt sækir kerfið sjálfgefinn gjaldmiðilskóta viðskiptamanns úr töflunni Viðskiptamaður þegar fært er í reitinn Númer viðskiptamanns. Þessi reitur er auður ef enginn gjaldmiðilskóti hefur verið færður inn á viðskiptamannaspjald.

Hægt er að skipta um gjaldmiðil með því að smella á reitinn.

Til athugunar
Þessum reit má breyta á meðan innheimtubréf hefur ekki verið sent. Ef reynt er að færa inn annan gjaldmiðilskóta og hafi ein eða fleiri innheimtubréfslínur verið útfylltar kemur þó viðvörun um að þær línur sem fyrir eru muni eyðast úr innheimtubréfinu.

Ábending

Sjá einnig