Sýnir heildarupphæðina sem viðkomandi lánardrottinn hefur fengið greidda. Ef reikningsfært er á lánardrottin í fleiri en einum gjaldmiðli er þessi upphæð mynduð úr mismunandi gjaldmiðlum. Þegar sú er raunin þarf að afmarka upphæðina með gjaldmiðilsafmörkun.

Hægt er að afmarka reitinn Greiðslur þannig að efni hans sé einungis byggt á tilteknum Alvíddargildum 1, Alvíddargildum 2, gjaldmiðlum og/eða dagsetningum.

Kerfið reiknar og uppfærir reitinn á grundvelli færslna í reitnum Upphæð í töflunni Lánardr.færsla þar sem tegund skjals er Greiðsla.

Hægt er að sjá færslur í lánardrottnabók sem mynda upphæðina sem birt er með því að velja reit.

Ábending

Sjá einnig