Tilgreinir færslur sem eru búnar til á ársreikningum við bókun færslubóka, pantana, reikninga og kreditreikninga og við notkun ýmissa keyrslna.
Stundum þarf að sjá hvernig ákveðin færsla varð til. Til dæmis ef sýna á hvort hún varð til við bókun færslubókar eða innkaupareiknings. Það er gert með því að nota töflurnar Upprunakóti og Uppsetn. upprunakóta.
Mikilvægt |
---|
Þegar nýtt fyrirtæki er sett upp er sjálfkrafa fyllt inn í töflurnar Upprunakóti og Uppsetn. upprunakóta. |
Við bókun eða keyrslu er réttur upprunakóti sjálfkrafa hengdur við færsluna. Til dæmis, við bókun úr færslubók er færslan kótuð sem FÆRSLUBK.
Til að sjá hvaðan tiltekin færsla kemur er hægt að fara á viðeigandi færslutöflu-t.d. Fjárhagsfærsla, Viðskm.færsla, Lánardr.færsla, og Birgðafærsla, og síðan er innihald reitarins Upprunakóði við hliðina á færslunni skoðað.
Ef reiturinn Upprunakóti er ekki í glugganum með færslutöflunni þarf notandinn að bæta honum við.
Í töflunni Upprunakóti eru allir mögulegir upprunakótar.
Í töflunniUppsetn. upprunakóta eru allar bókunaraðferðir (úr færslubók, af innkaupareikningi o.s.frv.) og heiti allra keyrslna sem stofna færslur. Hjá hverri bókunaraðferð og keyrslu er upprunakóti sem er skammstöfun fyrir hana. Dæmi:
FÆRSLUBK Færslubók