Tilgreinir kóta þeirrar númeraraðar sem er notuð til að úthluta fylgiskjalsnúmerum á færslubókarlínur í þessu forðabókarsniðmáti. Skoða má uppsettar númeraraðir í töflunni Númeraröð með því að velja reitinn.
Númeraraðirnar sem eru færðar inn í sniðmátið verða afritaðar í bókarkeyrslur sem eru settar upp samkvæmt sniðmátinu. Hins vegar er hægt að breyta númeraröðinni í bókarkeyrslunum.
Ef númeraraðakóti er einnig í reitnum Bókunarnúmeraröð er númeraröðin í reitnum Númeraröð aðeins notuð til þess að úthluta númeri til bráðabirgða. Annað númer er sett í stað bráðabirgðanúmersins við bókun.
Ef færslubókin er ítrekunarbók er ekki hægt að færa númeraröð í þennan reit. Ef setja á númeraröð í sniðmát ítrekunarbókar er reiturinn Bókunarnúmeraröð notaður.
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með reiti og dálka eru í Unnið með Microsoft Dynamics NAV. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |