Þegar kreditreikningur er bókaður sem móttekinn er hægt að skoða hann í glugganum Bókaður innkaupakreditreikn.

Innkaupareikningurinn var stofnaður þegar smellt var á hnappinn Bókun á innkaupareikningi.

Innkaupakreditreikningur samanstendur af innkaupareikningshaus og einni eða fleiri innkaupakreditreikningslínum.

Innkaupakreditreikningshausinn felur í sér allar viðeigandi upplýsingar um afhendingaraðila og þá lánardrottna sem greiða á til eins og heiti, aðsetur, númer fylgiskjals og dagsetningu. Upplýsingarnar eru afritaðar úr innkaupahausnum við bókun.

Í innkaupakreditreikningslínunum eru upplýsingar (eins og birgðanúmer, magn og kostnað) sem eru afritaðar úr bókuðu innkaupalínunni.

Ekki er hægt að breyta neinum reitanna á innkaupakreditreikningshausnum eða línum þar sem kreditreikningurinn hefur þegar verið bókaður.

Sjá einnig