Til að opna gluggann Fjárhagur í glugganum Bókhaldslykill er smellt á Tengdar upplýsingar, Staða, Fjárhagur. Glugginn sýnir samantekt á öllum debet- og kreditstöðum fyrir reikninginn sem var valinn í bókhaldslyklinum á mismunandi tímabilum.
Í reitnum Lokunarfærslur er hægt að velja hvort sú staða sem er sýnd taki með lokunarfærslur.
Hægt er að velja mismunandi tímabil í reitnum Skoða eftir. Reikningstímabil eru sett upp í töflunni Reikningstímabil.
Ef gátmerki er sett í reitinn Debet & kredit samtals mun heildarsumma beggja birtast.
Í reitnum Skoða sem er hægt að velja einn af eftirfarandi kostum til að ákvarða hvers konar upphæð er sýnd í dálkunum: Hreyfing eða Staða til dags.
Aðgerðin Hreyfing sýnir breytingu á upphæðum á hverju tímabili fyrir sig.
Aðgerðin Staða til dags. sýnir upphæðir eins og þær voru síðasta dag á hverju tímabili.
Einnig er hægt að færa inn víddargildin sem kerfið notar við afmörkun upplýsinganna í glugganum. Frekari upplýsingar um víddir eru í Vídd.
Í dálkunum í glugganum eru eftirfarandi upplýsingar:
Súla | Lýsing |
---|---|
Upphaf tímabils | Þessi dálkur sýnir byrjun þess tímabils sem sýnt er í línunni. |
Heiti tímabils | Þessi dálkur sýnir heiti þess tímabils sem sýnt er í línunni. |
Debetupphæð | Þessi dálkur sýnir debetupphæð fyrir tímabilið sem sýnt er í línunni. |
Kreditupphæð | Þessi dálkur sýnir kreditupphæð fyrir tímabilið sem sýnt er í línunni. |