Hægt er að tengja óendanlegan fjölda pantanaaðsetra við lánardrottinn. Hvert aðsetur er auðkennt með einstökum kóta og þegar hann er notaður á beiðni eða pöntun verða viðeigandi aðsetursupplýsingar prentaðar á innkaupapöntunina.
Mikilvægt |
---|
Það verður að vera búið að setja upp önnur pöntunaraðsetur fyrir viðeigandi lánardrottna. Frekari upplýsingar eru í Hvernig á að setja upp önnur pöntunaraðsetur fyrir lánardrottna. |
Önnur pöntunaraðsetur notuð fyrir lánardrottna
Í reitnum Leit skal færa inn Innkaupapantanir og velja síðan viðkomandi tengil.
Á flipanum Heim veljið Nýtt.
Fært er inn númer lánardrottinsins með öðru pöntunaraðsetri í reitnum Númer afhendingaraðila.
Í reitinn Pöntunaraðseturskóti er færður inn pöntunaraðseturskótinn sem á að nota.
Upplýsingarnar í reitunum Afh.aðili breytast til að til að endurspegla hitt pöntunaraðsetrið.
Fullkomna pöntunina.
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með reiti og dálka eru í Unnið með Microsoft Dynamics NAV. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |