Nota má gluggann Starfsábyrgðir til að setja upp þær starfsábyrgðir sem á að nota þegar færðar eru inn upplýsingar um tengiliði. Starfsábyrgð gefur til kynna starfssvið einstaklingstengiliðar innan fyrirtækis, til dæmis upplýsingatækni, stjórnun eða framleiðsla.
Uppsetning starfsábyrgða
Í reitnum Leit skal færa inn Starfsábyrgð og velja síðan viðkomandi tengil.
Á flipanum Heim í flokknum Nýtt skal velja Nýtt.
Fyllt er í reitina Kóti og Lýsing.
Skrefin eru endurtekin til að setja upp eins margar starfsábyrgðir og óskað er.
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með reiti og dálka eru í Unnið með Microsoft Dynamics NAV. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |