Dagatal vinnustöðvar tilgreinir vinnudaga og -stundir, vaktir, frídaga og fjarvistir sem hafa áhrif á mögulega heildarafkastagetu, mælda í tíma, með tilliti til tilgreindra gilda skilvirkni og getu. Stofnun og virkjun dagatals vinnustöðvar þarfnast nokkurra undirbúningsskrefa.

Fyrst þarf að setja upp eitt eða fleiri almenn dagatöl verkstæðis sem grunn fyrir útreikningum á tilteknu dagatali vinnustöðvar. Dagatal verkstæðis tilgreinir venjulega vinnuviku eftir upphafs- og lokatíma vinnudags og vaktaskipulagi. Auk þess tilgreinir dagatal verkstæðis fasta frídaga árs.

Frumskilyrði

Öllum gögnum um vinnutíma í vinnusal er safnað saman.

Vaktir stofnaðar

  1. Í reitnum Leit skal færa inn Vaktir og velja síðan viðkomandi tengil.

  2. Númer er fært inn í reitinn Kóti á auðri línu til að auðkenna vaktina t.d. 1.

  3. Vaktinni er lýst í reitnum Lýsing t.d. 1. vakt

  4. Einnig er hægt að fylla inn í línur fyrir aðra og þriðju vakt.

Jafnvel þótt vinnustöðvarnar noti ekki vaktaskipulag þarf að færa inn a.m.k. einn vaktakóta.

Dagatal verkstæðis sett upp

  1. Í reitinn Leit skal færa inn Dagatal verkstæðis og velja síðan viðkomandi tengil.

  2. Númer er fært inn í reitinn Kóti á auðri línu til að auðkenna dagatal verkstæðis.

  3. Dagatali verkstæðisins er lýst í reitnum Lýsing.

    Upphaflegri nafngift nýja verkstæðisdagatalsins er lokið. Nú er hægt að byrja á að tilgreina innihald hennar.

  4. Velja skal dagatal verkstæðis. Á flipanum Færsluleit, í flokknum Dagatal verkstæðis, skal velja Vinnudagar. Glugginn Vinnudagar á dagatali verkstæðis opnast með heiti dagatals verkstæðis.

  5. Skilgreina heila vinnuviku, með upphafs- og lokatíma fyrir hvern dag.

    Í reitnum Vaktakóti er hægt að velja einn af vöktunum sem áður voru skilgreind. Bæta við línu fyrir hvern vinnudag og hverja vakt. Dæmi:

    Mánudagur 07:00 15:00 1
    Þriðjudagur 07:00 15:00 1

    Ef þörf er á dagatali verkstæðis með tveimur vöktum þarf að fylla inn í hana á þennan hátt:

    Mánudagur 07:00 15:00 1
    Mánudagur 15:00 23:00 2
    Þriðjudagur 07:00 15:00 1
    Þriðjudagur 15:00 23:00 2

    Allir vikudagar sem ekki eru tilgreindir í dagatali verkstæðis, t.d. laugardagur og sunnudagur, eru teknir sem frídagar og hafa enga mögulega afkastagetu í dagatali vinnustöðvar.

    Þegar allir vinnudagar hafa verið skilgreindir má loka glugganum Vinnudagar í verkstæðisáætlun og byrja að færa inn frídaga:

  6. Í glugganum Dagatöl verkstæðis veljið dagatal verkstæðisins. Á flipanum Færsluleit í flokknum Dagatal verkstæðis skal velja Frídagar. Glugginn Frídagar á dagatali verkstæðis opnast.

  7. Skilgreina frídaga ársins með því að slá inn upphafs- og lokadagsetningu/-tíma þeirra og lýsingu á hverjum frídegi í hverja línu fyrir sig. Dæmi:

    04/07/14 0:00:00 23:59:00 sumarfrí
    05/07/14 0:00:00 23:59:00 sumarfrí
    06/07/14 0:00:00 23:59:00 sumarfrí

Tilgreindir frídagar hafa enga mögulega afkastagetu í dagatali vinnustöðvar.

Nú er hægt að úthluta dagatali verkstæðis á vinnustöð til útreiknings á dagatali vinnustöðvar sem mun stjórna tímasetningum aðgerða á þeirri vinnustöð.

Dagatal vinnustöðvar reiknað út

  1. Í reitnum Leit skal færa inn Vinnustöðvar og velja síðan viðkomandi tengil. Opna vinnustöðina sem á að uppfæra.

  2. Á flýtiflipanum Tímasetning, í reitnum Dagatalskóti verkstæðis, er valið hvaða dagatal verkstæði notar sem grunn fyrir dagatal vinnustöðvar.

  3. Á flipanum Færsluleit, í flokknum Áætlun, skal velja Dagatal.

  4. Í glugganum Vinnustöðvardagatal á flipanum Aðgerðir í flokknum Almennt veljið Sýna fylki.

    Vinstra megin í fylkjaglugganum má sjá uppsettar vinnustöðvar. Hægra megin er dagatal sem birtir tiltæk getugildi fyrir hvern vinnudag í skilgreindri mælieiningu, til dæmis 480 mínútur. Hver lína táknar dagatal einnar vinnustöðvar.

    Til athugunar
    Einnig er hægt að skoða gildi afkastagetu fyrir hverja viku eða mánuð með því að breyta valinu í reitnum Skoða eftir á flipanum Valkostir fylkis í glugganum Dagatal vinnustöðvar.

    Til að sýna nýtt dagatal verkstæðis sem línu á valdri vinnustöð verður það fyrst að vera reiknað.

  5. Í flipanum Aðgerðir í flokknum Eiginleikar veljið Reikna.

  6. Á flýtiflipanum Vinnustöð er hægt að setja afmörkun til að reikna einungis fyrir eina vinnustöð. Ef engar afmarkanir eru settar verða öll stofnuð dagatöl vinnustöðva reiknuð.

  7. Skilgreina upphafs- og lokadagsetningar dagatalstímabilsins sem á að reikna, t.d. eitt ár ; frá 01/01/14 til 31/12/14. Velja hnappinn Í lagi til að reikna út afkastaveitu.

Dagatalsfærslur eru nú búnar til (eða þær uppfærðar) og sýna þær mögulega afkastagetu fyrir hvert tímabil með tilliti til eftirfarandi 3 gerða aðalgagna:

  • Vinnudögum og vöktum sem tilgreind eru í úthlutuðu dagatali verkstæðis.
  • Gildinu í reitnum Geta á vinnustöðvarspjaldinu.
  • Gildinu í reitnum Skilvirkni á vinnustöðvarspjaldinu.

Reiknað dagatal vinnustöðvar skilgreinir nú hvenær og hversu mikil afkastageta er til staðar í þessari vinnustöð. Þetta stýrir ítarlegri röðun aðgerða sem framkvæmdar eru í vinnustöðinni.

Fjarvistir í vinnustöð skráðar

  1. Í glugganum Vinnustöðvardagatal á flipanum Aðgerðir í flokknum Almennt veljið Sýna fylki. Glugginn Fylki dagatals vinnustöðvar opnast.

  2. Veljið vinnustöð og dag sem skrá skal fjarvistartíma fyrir. Á flipanum Færsluleit, í flokknum Áætlun, skal velja Fjarvist.

  3. Í glugganum Fjarvist er tilgreindur upphafs- og lokatími fjarvistar þessa dags sem og lýsing á henni. Dæmi:

    25/01/01 08:00 10:00 viðhald

  4. Á flýtiflipanum Færsluleit, í flokknum Fjarvist, skal velja Uppfæra og síðan loka glugganum Fjarvist.

Afkastageta þessa dags hefur nú minnkað í samræmi við skráðan fjarvistartíma.

Stuttar leiðbeiningar um framleiðslu má finna í skjali sem hægt er að breyta og prenta í Microsoft Office Word. Skjalið, sem heitir Stuttar leiðbeiningar - Manufacturing Foundation.doc, er í fylgiskjalamöppu í uppsetningu biðlara.

Ábending

Sjá einnig