Það er mikilvægur þáttur í að ljúka kostnaðarferli þeirrar vöru sem verið er að framleiða að fullvinna framleiðslupöntunina. Lokakostnaður þ.m.t. frávik í stöðluðu kostnaðarumhverfi; rauntölur í FIFO-, meðaltals-, eða LIFO-kostnaðarumhverfi er reiknaður út með því að nota keyrsluna Leiðr. kostnað - Birgðafærslur sem gerir fjárhagslega afstemmingu af kostnaðinum af vöruframleiðslu mögulega. Framleiðslupöntun er bara tekin til kostnaðarleiðréttingar ef staða hennar er Lokið. Þess vegna er mikilvægt að þegar gerð framleiðslupöntunar er lokið sé stöðu hennar breytt í Lokið.
Dæmi
Í umhverfi með stöðluðum kostnaði fara kostnaður vöru auk starfsmannakostnaðar og sameiginlegs kostnaðar í VÍV þegar efni er bókað til að framleiða vöru. Þegar vara er framleidd er VÍV minnkað um upphæð staðalkostnaðar vörunnar. Yfirleitt er útkoman úr þessu ekki núll. Ef útkoman á að verða núll þarf því að keyra keyrsluna Leiðr. kostnað - Birgðafærslur og athuga að aðeins framleiðslupantanir með stöðuna Lokið séu teknar til leiðréttingar.