Tilgreinir kóta bókunarflokks viðskiptamanns. Mest má rita 10 stafi, bæði tölustafi og bókstafi.

Settur er upp kóti og upplýsingar fyrir hvern bókunarflokk. Síðan er kótinn færður inn í reitinn Bókunarflokkur viðskiptamanna. Við bókun pantana, reikninga, kreditreikninga, greiðslna, o.s.frv. notar kerfið þær upplýsingar sem kótinn vísar til að bóka þá reikninga sem tilgreindir voru.

Bókunarflokkar ákvarða á hvaða reikninga sala, greiðslur o.s.frv., eru bókaðar í fjárhagsbókhaldinu. Þeir eru einnig notaðir til að flokka viðskiptamenn svo auðvelda megi vinnslu á talnagögnum.

Nota skal lýsandi kóta sem auðvelt er að muna, til dæmis:

ESB, Útflutn, Innlent, án VSK, Opinber, Einka

Kótinn verður að vera eingildur - ekki er hægt að nota sama kótann tvisvar í sömu töflunni. Setja má upp eins marga kóta og þörf krefur.

Ábending

Sjá einnig