Hér er hægt að skilgreina færsluna sem leiðréttingarfærslu.

Reitinn má nota ef þörf er á að bóka leiðréttingarfærslu við reikning.

Ef gátmerki er sett í þennan reit við bókun leiðréttingarfærslu bókar kerfið neikvæða debetfærslu í stað kreditfærslu eða neikvæða kreditfærslu í stað debetfærslu. Í reitnum Upphæð debetfærslu (eða reitnum Upphæð kreditfærslu) á viðkomandi reikningi er þá bæði upphaflega færslan og leiðrétta færslan, sem hefur engin áhrif á debet- eða kreditstöðu.

Bókuð eru til dæmis kaup á tækjabúnaði fyrir SGM 500. Síðar kemur í ljós að færslan er röng og gerð er leiðréttingarfærsla fyrir SGM 500. Á reikningi fyrir tækjabúnað koma fram í reitnum Debetupphæð færslurnar SGM 500 í debet og SGM 500 í neikvæðum debet. Þessi innkaup og leiðréttingarfærslan í kjölfar þeirra hefur engin áhrif á upphæðina í reitnum Debetupphæð. Ef leiðréttingarfærslan er hins vegar bókuð sem venjuleg færsla kemur upphæðin SGM 500 bæði í reitinn Debetupphæð og í reitinn Kreditupphæð.

Hægt er að sjá upphæðina sem hefur safnast á viðkomandi reikning í reitnum Debetupphæð eða Kreditupphæð á viðeigandi reikningsspjaldi.

Ef nota á leiðréttingarreitinn skal setja gátmerki í reitinn.

Ábending

Sjá einnig