Inniheldur upplýsingar um atburði sem áttu sér stað við vinnslu þjónustuskjalanna sem skráð eru í kerfinu. Kerfið fyllir sjálfvirkt út þessa töflu á meðan unnið er með þjónustupantanir, tilboð, reikninga og kreditreikninga.
Hver lína í töflunni Þjónustuskjalsskrá er með upplýsingum um atburðinn, fyrra gildi reitsins sem var breytt, nýtt gildi sama reits, tegund fylgiskjalsins sem var uppfært við atburðinn (pöntun, tilboð, reikningur, kreditreikningur, afhending, bókaður reikningur eða bókaður kreditreikningur), númer skjalsins, dagsetningu og tíma atburðarins og kenni notandans sem átti hlut að máli.