Tilgreinir þann fjölda aukastafa sem kerfið sýnir (til dæmis á reikningum og í skýrslum) í sölu- og innkaupaverð vara og söluverði forða í þessum gjaldmiðli. Sjálfgefna stillingin 2:5 tilgreinir að sölu- og innkaupaverð í erlendum gjaldmiðlum sé sýnt með minnst tveimur aukastöfum og mest fimm aukastöfum.
Í þessum reit má tilgreina fjölda aukastafa sem:
-
fasta tölu.
-
lágmarks- og hámarksfjölda (aðgreinda með tvípunkti).
Eftirfarandi tafla sýnir hvernig kerfið notar efni reitsins Aukastafir í ein.upphæð til að sýna einingarverðið 768,963243 og 125 í tilteknum gjaldmiðlum:
Efni reitsins Fjöldi aukastafa í upphæð | Upphæðir eins og þær birtast |
---|---|
2 | 768,96 125,00 |
2:4 | 768,9632 125,00 |
0 | 769 125 |
0:5 | 768,96324 125 |
Í þessari töflu gefur 2:4 til kynna að minnst tveir tugastafir og mest fjórir tugastafir séu sýndir í einingarupphæðum í DKK. Kerfið sýnir upphæðir heilar (með engum aukastöfum) (ITL).
Þessi reitur ákvarðar aðeins hvernig kerfið sýnir einingarupphæðir. Hægt er að tilgreina reglur um sléttun upphæða í erlendum gjaldmiðli í töflunni Eining - Sléttunarnákvæmni.
Þessi aðgerð verður gerð virk næst þegar notandinn skráir sig inn í Microsoft Dynamics NAV.
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með reiti og dálka eru í Unnið með Microsoft Dynamics NAV. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |