Tilgreinir færsluna sem leiðréttingarfærslu.
Reiturinn er notaður ef bóka þarf leiðréttingarfærslu við reikning lánardrottins.
Ef gátmerki er sett í þennan reit við bókun leiðréttingarfærslu bókar kerfið neikvæða debetfærslu í stað kreditfærslu eða neikvæða kreditfærslu í stað debetfærslu. Í reitnum Upphæð debetfærslu (eða reitnum Upphæð kreditfærslu) á viðkomandi reikningi er þá bæði upphaflega færslan og leiðrétta færslan, sem hefur engin áhrif á debet- eða kreditstöðu.
Þannig eru til dæmis innkaup að upphæð SGM 500 bókuð sem kredit á Safnreikning. Síðar kemur í ljós að færslan er röng og þá er gerð leiðréttingarfærsla sem nemur SGM 500. Á Gjaldföllnum reikningum og á viðkomandi lánardrottinsspjaldi koma þá fram í reitnum kreditupphæð færslurnar SGM 500 í kredit og SGM 500 í neikvæðu kredit. Þessi innkaup og leiðrétting á þeim hafa engin áhrif á upphæðina í reitnum kreditupphæð. Ef leiðréttingarfærslan er hins vegar bókuð sem venjuleg færsla kemur upphæðin SGM 500 bæði í reitinn Debetupphæð og í reitinn Kreditupphæð.
Hægt er að sjá upphæðina sem hefur safnast á viðkomandi reikning í reitunum Debetupphæð eða Kreditupphæð á viðkomandi fjárhagsreikningi eða reikningsspjaldi lánardrottins.
Ef nota á leiðréttingarreitinn skal setja gátmerki í reitinn.
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með reiti og dálka eru í Unnið með Microsoft Dynamics NAV. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |