Inniheldur annað heiti fyrirtækisins sem senda á vörurnar í innkaupapöntuninni til.
Þessi reitur er notaður ef senda á vörurnar á annað aðsetur en aðsetur fyrirtækisins.
Þessi reitur er notaður í tvenns konar tilvikum:
-
Mismunandi sendingarstaðir
-
Bein afhending
Mismunandi sendingarstaðir:
Ef senda á vörur á annað aðsetur en aðsetur fyrirtækisins er hægt að fylla út sendist-til-aðsetursreitina í glugganum Stofngögn.
Ef reiturinn Sendist-til heiti er fylltur út í Stofngögnum sækir kerfið sjálfkrafa heitið þegar reiturinn Nr. er fylltur út. Reiturinn er auður ef ekkert er skráð í Stofngögn.
Bein afhending:
Ef senda á vörur í innkaupapöntun (sem tengist sölupöntun) beint til viðskiptamanns með beinni afhendingu sýnir reiturinn nafn viðskiptamannsins sem á að fá vörurnar.
Kerfið sækir Sendist-til - heiti sjálfvirkt úr töflunni Viðskiptamaður þegar fyllt er í reitinn Selt-til - Viðskm.nr.
Nafninu má breyta annaðhvort með því að skrá annað heiti eða með því að skrá sendist-til kóta viðskiptamannsins fyrir sendist-til aðsetrið sem óskað er eftir.
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með reiti og dálka eru í Unnið með Microsoft Dynamics NAV. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |