Tilgreinir kóta afhendingaraðseturs. Mest má rita 10 stafi, bæði tölustafi og bókstafi.
Kóti sem táknar upplýsingar, svo sem viðskiptamannanúmer og heiti viðskiptamanns, er tengdur hverju aðsetri. Við stofnun tilboða, pantana, reikninga og kreditreikninga má færa sendist-til kótann inn í reitinn Sendist-til - Kóti á söluhausnum, en hann ákvarðar sendist-til aðsetrið í hverju tilviki.
Nota skal kóta sem auðvelt er að muna og eru lýsandi, til dæmis götuheitið.
Kótinn verður að vera eingildur - ekki er hægt að nota sama kótann tvisvar í sömu töflunni. Setja má upp eins marga kóta og þörf krefur.
![]() |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með reiti og dálka eru í Unnið með Microsoft Dynamics NAV. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |