Tilgreinir fylgiskjalsnúmer fyrir færslubókarlínu.
Ef reiturinn Bókunarnúmeraröð á færslubókarlínunni inniheldur númeraraðarkóta, er hann notaður til að úthluta bókunarfærslunni fylgiskjalsnúmer. Ef reiturinn Bókunarnúmeraröð er auður er innihald reitsins notað sem fylgiskjalsnúmer bókuðu færslunnar.
Ef reiturinn Númeraröð á bókarkeyrslunni er fylltur út, er næsta númer í númeraröðinni sjálfkrafa fært í reitinn.
Hægt er að tilgreina fylgiskjalsnúmer handvirkt ef reiturinn Númeraröð í bókarkeyrslunni er auður.
Ef um er að ræða ítrekunarbók og reiturinn Bókunarnúmeraröð í línunni er auður er hægt að færa inn reiknireglu hér sem er notuð til að búa til fylgiskjalsnúmer fyrir hverja bókaða færslu. Fylgiskjalsnúmerið verður sjálfkrafa uppfært í hvert sinn sem færslubókin er bókuð. Einnig er hægt að velja að færa inn fastan texta sem er notaður í hvert sinn sem færslubókin er uppfærð.
Eftirfarandi tafla sýnir kótana sem hægt er að nota til að setja upp reiknireglu fyrir fylgiskjalsnúmer.
Kóti | Niðurstaða: |
---|---|
%1 | Núverandi dagur, t. d. mánudagur |
%2 | Líðandi vika, s. s. 52 |
%3 | Númer líðandi mánaðar, s. s. 1 |
%4 | Heiti líðandi mánaðar, svo sem janúar |
%5 | Heiti líðandi bókhaldstímabils, til dæmis janúar |
Dæmi
Ef fylgiskjalsnúmer færslunnar er "K (klst.) + líðandi mánuður," skal rita K%3 í reitinn. Fylgiskjalsnúmerið fyrir janúar verður H1.
Ef fleiri línur en ein eru í færslubókinni heldur kerfið sjálfkrafa sama númeri á síðari línum þar til staða bókarinnar er 0. Næsta númer í röðinni færist þá í næstu línu.
![]() |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með reiti og dálka eru í Unnið með Microsoft Dynamics NAV. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |