Tilgreinir URI fyrir staðinn sem fylgiskjölin eru geymd, til dæmis á SharePoint Online.
Hægt er að nota reitinn Birgðageymsla til að tilgreina veffangið í skjalþjónustuveitunni, svo sem https://Cronus.sharepoint.com eða https://Cronus.sharepoint.com/Subsidiary. Hægt er að nota reitinn Lýsing til að lýsa þjónustunni fyrir samstarfsmönnum, til dæmis SharePoint Online síðan okkar. Frekari upplýsingar eru í How to: Configure Online Document Storage.
Viðbótarupplýsingar
Ef fyrirtækið notar þjónustu á borð við Office 365 og SharePoint Online til að geyma og nálgast skjöl, er hægt að setja þjónustuna upp í Microsoft Dynamics NAV. Þegar fylgiskjal er svo opnað úr Microsoft Dynamics NAV, til dæmis áætlun sem birtast á í Excel, notar Microsoft Dynamics NAV skjalaþjónustuna.
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með reiti og dálka eru í Unnið með Microsoft Dynamics NAV. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |