Inniheldur kóta þess verðflokkskóta viðskiptamanna sem reikningsfærsluviðskiptamanninum hefur verið skipað í. Kótar fyrir verðflokk viðskiptamanns birtast í töflunni Verðflokkur viðskiptam. þegar smellt er á reitinn.
Kerfið sækir kótann úr töflunni Viðskiptamaður þegar reiturinn Reikn.færist á viðskm. er fylltur út. Ef enginn verðflokkur hefur verið færður inn á spjald viðskiptamanns er þessi reitur auður.
Kótinn er notaður þegar kerfið reiknar einingarverð fyrir vörur í áætlunarlínu. Kerfið kannar í töflunni Söluverð hvort annað vöruverð en það sem tilgreint er í reitnum Ein.verð á birgðaspjaldi sé gjaldfært á viðskiptamenn sem keypt hafa vörur í tilteknum verðflokki.
Hafi verið sett upp verð eða afsláttur fyrir vöruna í Verkverðs- og vöruverðstöflunni er litið framhjá verðflokki viðskiptamannsins.
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með reiti og dálka eru í Unnið með Microsoft Dynamics NAV. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |