Tilgreinir afmörkun til að afmarka greiningarskýrslu eftir vörunúmeri, númeri viðskiptamanns eða númeri lánardrottins.
Það fer eftir valinu á afmörkun upprunategundar í reitnum Tegund uppruna - Afmörkun hvort afmarkað er eftir vöru, viðskiptamanni eða lánardrottni í þessum reit.
Til athugunar |
---|
Afmarkanir sem eru tilgreindar í reitunum Tegund uppruna - Afmörkun og Upprunanúmer - Afmörkun eru aðeins notaðar á gildin í fykisglugganum en ekki línur skýrslunnar. Ef t.d. viðskiptamenn eru greiningarlínur er hægt að velja vöru sem tegund uppruna og tiltekið vörunúmer eða vörusvið sem afmörkun til að sjá aðeins greiningartölur fyrir viðskiptamennina afmarkaðar eftir valinni vöru (vörusviði). |
Upprunategundar- og upprunanúmersafmarkanirnar virka ekki rétt ef þær stangast á við greiningarlínurnar sem hafa verið valdar fyrir skýrsluna. Ef t.d. hefur verið sett upp greiningarskýrsla með viðskiptamönnum í línunum og síðan er færð inn afmörkun á tiltekinn viðskiptamann eru samt allir viðskiptamenn sýndir í línunum en gildin verða reiknuð fyrir viðskiptamanninn sem var tilgreindur í afmörkuninni.
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með reiti og dálka eru í Unnið með Microsoft Dynamics NAV. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |