Opnið gluggann Ógilda jöfnun lánardr.færslna.

Afjafnar (afturkallar) rangar jafnanir í lánardrottinsbókarfærslum. Hægt er að ógilda færslur í lánardrottnabók í glugganum Lánardr.færslur og glugganum Sundurliðaðar lánardr.færslur.

Hægt er að enduropna lokaðar lánardrottnafærslur með því að ógilda jafnanir sem þegar hafa verið bókaðar. Allar bókanir í fjárhag sem gætu verið leiddar af rangri jöfnun, eins og greiðsluafsláttur og gengishagnaður/tap, verða leiðréttar þegar færsla er gerð ógild. Athugið að einungis er hægt að ógilda jöfnunarfærslu ef upprunalega jöfnunarfærslan er síðasta jöfnunin sem er bókuð í einhverri lánardrottnafærslunni.

Glugginn inniheldur eina línu fyrir hverja sundurliðaða lánardrottnafærslu í tengslum við jöfnunina sem gera á ógilda. Ekki er hægt að breyta upplýsingunum í línunni nema Nr. fylgiskjals og Bókunardags. ef við á.

Við ógildingu stofnar og bókar kerfið eina leiðréttingarfærslu, færslu sem er eins og upphaflega færslan en með öfugu formerki í reit upphæðar fyrir hverja línu í þessum glugga. Hætt er við ógildingu með því einfaldlega að loka glugganum.

Ábending

Sjá einnig