Tilgreinir hvort samstilla eigi gögn tengiliðar í Microsoft Dynamics NAV og tengiliðar í Microsoft Dynamics CRM.
Hægt er að nota þennan valkost til að gera gögnin í tilteknum reitum tengiliðar eins á báðum stöðum. Samstilling er aðeins framkvæmd í reitum tengiliðar Microsoft Dynamics NAV og tengiliðar Microsoft Dynamics CRM sem varpað er saman. Í flýtiflipanum Tengdar færslur er hægt að sjá núgildandi gögn í flestum vörpuðum reitum. Eftirfarandi tafla lýsir valkostum fyrir þennan reit.
Valkostur | Lýsing |
---|---|
Nei | Samstillið ekki færslurnar. |
Já - Nota gögnin Dynamics NAV | Afritar gögn úr vörpuðum reitum tengiliðar í Microsoft Dynamics NAV í tengiliðafærslu í Microsoft Dynamics CRM. Ef tengiliðareitur inniheldur þegar gögn verður skrifað yfir þau. Ef valið er að stofna nýjan tengilið í Microsoft Dynamics CRM er þessi valkostur valinn sjálfgefið og honum er ekki hægt að breyta. |
Já - Nota gögn Dynamics CRM | Afritar gögn úr vörpuðum reitum tengiliðar í Microsoft Dynamics CRM í tengilið í Microsoft Dynamics NAV. Ef tengiliðareitur inniheldur þegar gögn verður skrifað yfir þau með gögnum úr Microsoft Dynamics CRM. |
![]() |
---|
Samstilling fer fram eftir að glugganum er lokað með því að velja hnappinn Í lagi. |
![]() |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með reiti og dálka eru í Unnið með Microsoft Dynamics NAV. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |