Stofnar sjálfkrafa sölukreditreikning sem hægt er að skoða í glugganum Bókaður sölukreditreikningur þegar sölukreditreikningur er bókaður.
Sölukreditreikningurinn er stofnaður þegar smellt er á Aðgerðir og síðan valið Bóka eða Bóka og prenta.
Sölukreditreikningur samanstendur af sölukreditreikningshaus og einni eða fleirum sölukreditreikningslínum.
Sölukreditreikningshausinn hefur að geyma allar viðeigandi upplýsingar bæði um þann viðskiptamann sem selt er til og þann sem reikningsfært er á, eins og nafn, aðsetur, númer fylgiskjals og dagsetningar. Kerfið afritaði upplýsingarnar úr söluhausnum við bókun hans.
Sölukreditreikningslínur fela í sér upplýsingar (eins og birgðanúmer, magn og verð) sem eru afritaðar úr bókaðri sölulínu.
Ekki er hægt að breyta neinum reitanna á sölukreditreikningshaus eða -línum þar sem kreditreikningurinn hefur þegar verið bókaður.