Við bókun sölupöntunar er sjálfkrafa stofnuð söluafhending sem hægt er að skoða í glugganum Bókuð söluafhending.

Söluafhendingin er stofnuð þegar smellt er á Aðgerðir, bent á Bóka eða Bóka og prenta og einn af eftirfarandi kostum síðan valinn:

Mikilvægt
Ef merki er í gátreitnum Afhendist á reikning í glugganum Sölugrunnur verður einnig stofnuð afhending við bókun reiknings.

Söluafhending samanstendur af söluafhendingarhaus og einni eða fleirum söluafhendingarlínum.

Söluafhendingarhausinn hefur að geyma allar viðeigandi upplýsingar um þann viðskiptamann sem selt er til og þann sem er reikningsfært á, eins og nafn, aðsetur, númer fylgiskjals og dagsetningar. Kerfið afritaði upplýsingarnar úr söluhausnum við bókun hans.

Söluafhendingarlínur fela í sér upplýsingar (eins og birgðanúmer, magn og verð) sem eru afritaðar úr bókaðri sölulínu.

Ekki er hægt að breyta neinum reitanna í söluafhendingarhaus eða -línum þar sem afhendingin hefur þegar verið bókuð.

Sjá einnig